Er gamla vélin farin að takmarka þig? – APS-C uppfærslur

APS-C uppfærsla

Er gamla vélin þín farin að takmarka þig?

Kannski þarftu ekki Full-Frame. Kannski þarftu einfaldlega kraftmeiri APS-C vél. Ef þú finnur að autofocus er hægur, stjórnun takmörkuð eða vélin hægir á þér, þá getur uppfærsla innan APS-C verið fullkomið næsta skref.

👉 Þú getur haldið áfram að nota EF-S linsurnar þínar – og einnig allar EF linsur sem þú átt nú þegar.

Skoða kraftmeiri APS-C vélar →
Mild uppfærsla

700D · 750D · 760D

  • Nýrri skynjaraárgangur
  • Snertiskjár / snúningsskjár
  • Betri notendaupplifun
  • Frábært næsta skref frá eldri APS-C vél
Alvöru stökk í stjórn

Canon EOS 70D · 80D

Fyrir marga er þetta stærsta og skynsamlegasta uppfærslan innan APS-C. Hér finnurðu strax mun á autofocus, hraða og stjórn.

  • Mun betra autofocus kerfi en í byrjendavélum
  • Hraðari continuous shooting
  • Meiri og þægilegri stjórnhnappar
  • Betri bygging og “meiri vél” í höndunum
  • Frábær lausn fyrir landslag, portrett og action

Þetta er uppfærsla sem þú finnur strax fyrir — án þess að þurfa að skipta um linsur eða fara í Full-Frame.

Hraði & Action

Canon EOS 7D · 7D Mark II

Fyrir þá sem mynda hreyfingu, fugla, dýralíf eða íþróttir — hér skiptir hraði og autofocus öllu máli.

  • Mjög hraður continuous shooting
  • Öflug og nákvæm autofocus kerfi
  • Sterk og veðurþétt bygging
  • Pro-tilfinning og meiri ending
  • 7D Mark II með tvöföldum kortum og öflugra AF

Þetta er kraftmesta APS-C lausnin áður en farið er í Full-Frame.

Kraftmeiri APS-C á sérverði

Nú eru nokkrar kraftmeiri APS-C vélar á sérverði. Sérverð gildir í 14 daga eða á meðan lager endist.

Skoða kraftmeiri APS-C á sérverði →

Af hverju velja APS-C uppfærslu?

Uppfærsla innan APS-C er oft skynsamlegasta skrefið. Þú heldur áfram að nota linsurnar þínar, sparar þér kostnað og færð samt verulegt stökk í hraða, stjórn og notendaupplifun. Fyrir marga er þetta skrefið sem breytir öllu – án þess að skipta um allt kerfið.