Gull og Silfur vélar – Úrvalseintök

🥇
🥈
🥉
Þrír flokkar – allir með sína styrkleika.

Gull, Silfur og Brons vélar – Vandað val

Hér finnur þú vandlega valdar fyrst flokks Canon myndavélar á lager – flokkaðar í Gull, Silfur og Brons eftir ástandi, smellafjölda og heildaryfirbragði. Allir flokkar innihalda góðar vélar; munurinn liggur í ástandi, aldri, notkun og verði.

🥇 Gull-eintök

Úrval bestu eintaka

Sérlega sjaldgæf úrvals-eintök með WiFi, afar lágan shutter count og nánast ósnert yfirbragð. Þetta eru vélar sem líta næstum út eins og nýjar – fyrir þá sem vilja einfaldlega það allra besta.

  • Óvenju lítið notaðar
  • Framúrskarandi ástand
  • Henta vel sem gjöf eða til langtímanotkunar

🥈 Silfur-eintök

Gott jafnvægi milli gæða og verðs

Mjög vel með farin og lítið notuð eintök sem bjóða upp á sterka blöndu af gæðum, ástandi og góðu verði. Traust kaup fyrir þá sem vilja vandaða Canon vél í mjög góðu ástandi.

  • Lítið notaðar
  • Vandlega yfirfarnar
  • Góð kaup með minni áhættu

🥉 Brons-eintök

Traust val á hagstæðu verði

Reyndar og traustar Canon myndavélar af eldri gerð sem bjóða upp á góða virkni og mikið notagildi á lægra verði. Þær geta borið eðlileg notkunarmerki en eru að fullu yfirfarnar og í góðu lagi.

  • Hagkvæmari kostur
  • Yfirfarnar og prófaðar
  • Góður inngangur inn í Canon kerfið

Allar vélar eru yfirfarnar og prófaðar á Íslandi og koma með skýra lýsingu á ástandi, virkni og smellafjölda – svo þú veist nákvæmlega hvað þú ert að fá.


Hvað er “shutter count”?

Shutter count er fjöldi mynda sem hefur verið tekin með vélinni. Lægri tala þýðir yfirleitt minni notkun – en heildarástand, umhirða og meðferð skiptir líka miklu máli.