Hvaða minniskort fyrir Canon myndavél?
Rétt minniskort skiptir máli fyrir hraða, áreiðanleika og hversu margar myndir þú getur tekið. Flestar Canon DSLR myndavélar nota SD kort og fyrir venjulega ljósmyndun dugir oft UHS-I V30 kort mjög vel.
Hér að neðan útskýrum við hvaða kort henta best fyrir mismunandi Canon vélar og hvað merkingar eins og UHS-I, V30 og SDXC þýða.
Algengt er að minniskort fylgi myndavélunum sem við seljum, svo hægt sé að byrja að taka myndir strax. Í mörgum tilvikum er þetta SanDisk Ultra kort (8GB–32GB) sem dugir vel til að byrja með.
Margir velja þó stærra eða hraðara kort fyrir daglega notkun. Þess vegna bjóðum við einnig upp á að kaupa minniskort sérstaklega.
Þú getur sótt kortið til okkar og fengið það strax, eða við sendum það í pósti og það er venjulega komið í hendur þér eftir 1–2 daga.
Skoða minniskort
Hvaða minniskort fylgir Canon vélum?
Til að þú getir byrjað að taka myndir strax fylgir oft lítið minniskort með myndavélunum okkar. Þetta er fyrst og fremst til að byrja með — margir velja síðan stærra kort fyrir daglega notkun.
| Canon vél | Kort sem fylgir | Ráðlagt kort | Athugasemd |
|---|---|---|---|
| Canon 500D | 8GB SanDisk Ultra | 64GB SanDisk Extreme | Gott byrjendakort |
| Canon 550D | 8GB SanDisk Ultra | 64GB SanDisk Extreme | Hentar vel fyrir RAW myndir |
| Canon 100D | 8GB SanDisk Ultra | 64GB eða 128GB Extreme | Lítil og vinsæl ferðavél |
| Canon 600D | 16GB SanDisk Ultra | 64GB Extreme | Gott allround kort |
| Canon 700D / 750D / 760D | 16GB SanDisk Ultra | 128GB Extreme eða Extreme Plus | Meiri pláss fyrir RAW |
| Canon 200D / 250D | 32GB SanDisk Ultra | 128GB Extreme Plus | Besti kosturinn fyrir flesta |
| Canon 6D | 32GB SanDisk Ultra | 128GB Extreme | Full Frame RAW skrár |
| Canon 6D Mark II | 32GB SanDisk Ultra | 128GB Extreme Plus | Stærri RAW skrár |
| Canon 5D Mark III | 32GB SanDisk Ultra | 128GB Extreme Pro | Hentar vel fyrir hraða myndatöku |
| Canon 7D Mark II | 32GB SanDisk Ultra | 128GB Extreme Pro | Hraðvirk sportvél |
Hvað þýða merkingar á minniskortum?
SDHC vs SDXC
- SDHC – allt að 32GB
- SDXC – 64GB og stærra
Flestar Canon DSLR myndavélar styðja bæði.
UHS-I vs UHS-II
- UHS-I – algengast í DSLR
- UHS-II – hraðara en þarf sérstaka myndavél
Flestar Canon DSLR vélar nýta ekki fullan hraða UHS-II korta.
V30 / V60 / V90
Þetta er video hraðastaðall.
- V30 – nóg fyrir flesta
- V60 – fyrir hraðari video
- V90 – atvinnuvideo
Hvaða SanDisk kort hentar best?
| Kort | Hentar fyrir |
|---|---|
| SanDisk Ultra | Byrjendur og JPG myndir |
| SanDisk Extreme | RAW ljósmyndun og almenn notkun |
| SanDisk Extreme Plus | Frábært allround kort |
| SanDisk Extreme Pro | Hraðvirkar vélar og burst myndataka |
• SanDisk Extreme 64GB
• SanDisk Extreme Plus 128GB
Eitt stórt kort eða fleiri lítil?
Sumir ljósmyndarar kjósa eitt stórt kort (t.d. 128GB), en aðrir kjósa að hafa fleiri minni kort (t.d. 32GB) sérstaklega í ferðalögum.
Þá dreifast myndirnar á fleiri kort og áhættan minnkar ef kort bilar eða týnist.
Skoða minniskort fyrir Canon vélar
Við bjóðum upp á áreiðanleg SanDisk kort sem henta vel fyrir Canon DSLR myndavélar.
Skoða minniskort