Canon EOS 6D – Upplýsingasíða

Canon EOS 6D – Hagkvæm leið inn í full-frame heiminn

Canon EOS 6D er ein áhugaverðasta full-frame DSLR vél Canon fyrir þá sem vilja stíga upp úr APS-C. Hún er sérstaklega sterk í landslagi, portrettum og almennri ljósmyndun þar sem full-frame skynjarinn skilar fallegri dýpt, betri birtunýtingu og sterkum myndgæðum.

Er Canon EOS 6D rétt vél fyrir þig?

  • ✔ Þú vilt fara úr APS-C yfir í full-frame
  • ✔ Þú vilt fallega bakgrunnsóskýringu og sterk myndgæði
  • ✔ Þú tekur landslag, portrett eða fjölskyldumyndir
  • ✔ Þú vilt hagkvæma full-frame Canon vél

6D er sérstaklega góð fyrir þá sem vilja upplifa kosti full-frame án þess að fara beint í dýrari vélar.

Helstu kostir Canon EOS 6D

  • 20MP full-frame skynjari
  • Mjög góð myndgæði og falleg teikning
  • Góð frammistaða í daufri birtu
  • Léttari en margar aðrar full-frame DSLR vélar
  • Wi-Fi og GPS

Hvar eru takmarkanirnar?

  • Autofocus kerfið er einfaldara en í 5D Mark III og 6D Mark II
  • Ekki besta vélin fyrir hraða íþrótta- eða fuglaljósmyndun
  • Snertiskjár og snúningsskjár vantar

Fyrir landslag, portrett og almenna ljósmyndun skiptir þetta marga þó litlu máli – þar er 6D enn mjög sterk vél.

Munurinn á 6D og öðrum Canon vélum

6D vs 80D: 6D er full-frame og gefur aðra dýpt og betri low-light tilfinningu.

6D vs 6D Mark II: 6D Mark II er nýrri með betri autofocus og snertiskjá.

6D vs 5D Mark III: 5D Mark III er sterkari og fjölhæfari, en 6D er hagkvæmari leið inn í FF.

Tæknilegar upplýsingar

  • Skynjari: Full-frame (20,2 megapixlar)
  • Autofocus: 11 punkta AF
  • Seríutaka: allt að 4,5 rammar á sekúndu
  • Video: Full HD
  • Skjár: 3″ fastur skjár
  • Tenging: Wi-Fi + GPS
  • Þyngd: ca. 770g
  • Útgáfuár: 2012

Fáanlegt hjá Myndavélamarkaðnum

Canon EOS 6D er mjög spennandi kostur fyrir þá sem vilja fara upp í full-frame með skynsamlegum hætti. Hún nýtur sín sérstaklega vel með góðum EF linsum fyrir portrett, landslag og almenna ljósmyndun.

Skoða 6D