Helstu Canon DSLR myndavélar

Canon DSLR myndavélar – yfirlit og þróun

Canon DSLR vélar hafa þróast mikið á síðustu árum. Sum módel leggja áherslu á einfaldleika og lágt verð fyrir byrjendur, önnur á hraða, fókus og byggingu fyrir metnaðarfulla áhugaljósmyndara, og full-frame línan býður upp á meiri myndgæði, betri frammistöðu í lítilli birtu og sterkari heildarupplifun.

Veist þú muninn á 600D, 700D og 80D? Hér fyrir neðan er einfalt yfirlit yfir helstu Canon DSLR vélar sem margir skoða enn í dag. Markmiðið er að hjálpa þér að átta þig fljótt á þvi hvaða vél hentar þér best. Þar séruð m.a. upplýsingar um hverjir eru helstu kostir hennar og fyrir hvaða notkun hún hentar best.

Hvernig á að lesa þetta yfirlit?

Útgáfuár segir ekki allt. Eldri DSLR vél getur enn verið frábær kostur ef hún býður upp á góða byggingu, sterkan fókus, góð myndgæði eða sérstaklega hagstætt verð. Þess vegna er best að skoða vélina í samhengi við notkun, eiginleika og verðflokk – ekki bara ártal.

Yfirlit yfir helstu Canon DSLR vélar

Vél Kynnt Helsti kostur Notkunarhópur Styrkleiki / framför
500D 2009 Mjög hagkvæm DSLR Byrjendur á budget Verð / gæði
550D 2010 Betri skynjari en eldri vélar Byrjendur / nemendur Skarpari myndir á lágu verði
100D 2013 Lítil og létt DSLR Byrjendur / ferðaljósmyndarar Færanleiki + einföld notkun
200D 2017 Snertiskjár + WiFi Byrjendur / fjölskylda Auðveld í notkun + góð myndgæði
250D 2019 Nýjasta DSLR í þessum flokki Byrjendur / content creators Video + létt og nútímaleg
600D 2011 Snúanlegur skjár Byrjendur / vlogg / fjölskylda Sveigjanleiki í myndatöku
700D 2013 Snertiskjár + einföld stýring Byrjendur Notendavæn upplifun
750D 2015 Nútímalegri AF og WiFi Áhugaljósmyndarar Betri fókus og tengingar
800D 2017 Mjög góð sjálfvirk fókuskerfi Metnaðarfullir áhugaljósmyndarar Frábær AF + myndgæði
70D 2013 Dual Pixel AF Áhugaljósmyndarar Video + Live View fókus
80D 2016 Betri AF og veðurþol Metnaðarfullir áhugaljósmyndarar Áreiðanleiki + fjölhæfni
7D 2009 Hraði og bygging Íþrótta- og náttúruljósmyndarar Hraði + sterk bygging
7D Mark II 2014 Pro APS-C vél Dýra- og sportljósmyndarar Hraði + topp AF
6D 2012 Ódýr inngangur í full-frame Áhugaljósmyndarar Frábært í lítilli birtu
6D Mark II 2017 Nútímaleg full-frame með snertiskjá Áhugaljósmyndarar Létt FF + góð notkun
5D Mark III 2012 Full-frame á áreiðanleika Metnaðarfullir / atvinnuljósmyndarar Ending + fjölhæfni
5D Mark IV 2016 Top class full-frame Metnaðarfullir / atvinnuljósmyndarar Myndgæði + hraði

Þróunin í stuttu máli

1. Byrjendavélar urðu notendavænni

Frá 500D og 550D yfir í 600D, 700D, 200D og 250D sést skýr þróun í átt að einfaldari notkun, snertiskjám, betri tengimöguleikum og léttari hönnun. Þetta gerir nýjum notendum auðveldara að byrja.

2. Áhugavélar urðu sterkari og fjölhæfari

70D og 80D sýna hvernig Canon bætti bæði sjálfvirkan fókus, skjástýringu, videoeiginleika og áreiðanleika. Þær henta vel þeim sem vilja meira svigrúm til að þróa sig áfram.

3. 7D línan var sérhæfðari

7D og sérstaklega 7D Mark II voru byggðar með hraða, fókus og sterka byggingu í huga. Þær höfða mikið til þeirra sem taka fugla, dýr, íþróttir eða aðrar hraðar aðstæður.

4. Full-frame varð aðgengilegri

6D gerði full-frame að raunhæfum valkosti fyrir áhugaljósmyndara. 6D Mark II bætti við nútímalegri notkun, meðan 5D Mark III og 5D Mark IV voru sterkari kostir fyrir þá sem vildu meiri afköst, betri fókus og meira vinnuvinnsluþol.

Hvaða vél hentar þér?

Það fer fyrst og fremst eftir því hvernig þú ætlar að nota vélina:

  • Byrjendur: 100D, 200D, 250D, 600D, 700D
  • Áhugaljósmyndarar: 750D, 70D, 80D, 6D, 6D Mark II
  • Hraði / fuglar / sport: 7D, 7D Mark II
  • Full-frame með meiri afköstum: 5D Mark III, 5D Mark IV