Canon DSLR myndavélar – yfirlit og þróun
Canon DSLR vélar hafa þróast mikið á síðustu árum. Sum módel leggja áherslu á einfaldleika og lágt verð fyrir byrjendur, önnur á hraða, fókus og byggingu fyrir metnaðarfulla áhugaljósmyndara, og full-frame línan býður upp á meiri myndgæði, betri frammistöðu í lítilli birtu og sterkari heildarupplifun.
Veist þú muninn á 600D, 700D og 80D? Hér fyrir neðan er einfalt yfirlit yfir helstu Canon DSLR vélar sem margir skoða enn í dag. Markmiðið er að hjálpa þér að átta þig fljótt á þvi hvaða vél hentar þér best. Þar séruð m.a. upplýsingar um hverjir eru helstu kostir hennar og fyrir hvaða notkun hún hentar best.
Hvernig á að lesa þetta yfirlit?
Útgáfuár segir ekki allt. Eldri DSLR vél getur enn verið frábær kostur ef hún býður upp á góða byggingu, sterkan fókus, góð myndgæði eða sérstaklega hagstætt verð. Þess vegna er best að skoða vélina í samhengi við notkun, eiginleika og verðflokk – ekki bara ártal.
Yfirlit yfir helstu Canon DSLR vélar
| Vél | Kynnt | Helsti kostur | Notkunarhópur | Styrkleiki / framför |
|---|---|---|---|---|
| 500D | 2009 | Mjög hagkvæm DSLR | Byrjendur á budget | Verð / gæði |
| 550D | 2010 | Betri skynjari en eldri vélar | Byrjendur / nemendur | Skarpari myndir á lágu verði |
| 100D | 2013 | Lítil og létt DSLR | Byrjendur / ferðaljósmyndarar | Færanleiki + einföld notkun |
| 200D | 2017 | Snertiskjár + WiFi | Byrjendur / fjölskylda | Auðveld í notkun + góð myndgæði |
| 250D | 2019 | Nýjasta DSLR í þessum flokki | Byrjendur / content creators | Video + létt og nútímaleg |
| 600D | 2011 | Snúanlegur skjár | Byrjendur / vlogg / fjölskylda | Sveigjanleiki í myndatöku |
| 700D | 2013 | Snertiskjár + einföld stýring | Byrjendur | Notendavæn upplifun |
| 750D | 2015 | Nútímalegri AF og WiFi | Áhugaljósmyndarar | Betri fókus og tengingar |
| 800D | 2017 | Mjög góð sjálfvirk fókuskerfi | Metnaðarfullir áhugaljósmyndarar | Frábær AF + myndgæði |
| 70D | 2013 | Dual Pixel AF | Áhugaljósmyndarar | Video + Live View fókus |
| 80D | 2016 | Betri AF og veðurþol | Metnaðarfullir áhugaljósmyndarar | Áreiðanleiki + fjölhæfni |
| 7D | 2009 | Hraði og bygging | Íþrótta- og náttúruljósmyndarar | Hraði + sterk bygging |
| 7D Mark II | 2014 | Pro APS-C vél | Dýra- og sportljósmyndarar | Hraði + topp AF |
| 6D | 2012 | Ódýr inngangur í full-frame | Áhugaljósmyndarar | Frábært í lítilli birtu |
| 6D Mark II | 2017 | Nútímaleg full-frame með snertiskjá | Áhugaljósmyndarar | Létt FF + góð notkun |
| 5D Mark III | 2012 | Full-frame á áreiðanleika | Metnaðarfullir / atvinnuljósmyndarar | Ending + fjölhæfni |
| 5D Mark IV | 2016 | Top class full-frame | Metnaðarfullir / atvinnuljósmyndarar | Myndgæði + hraði |
Þróunin í stuttu máli
1. Byrjendavélar urðu notendavænni
Frá 500D og 550D yfir í 600D, 700D, 200D og 250D sést skýr þróun í átt að einfaldari notkun, snertiskjám, betri tengimöguleikum og léttari hönnun. Þetta gerir nýjum notendum auðveldara að byrja.
2. Áhugavélar urðu sterkari og fjölhæfari
70D og 80D sýna hvernig Canon bætti bæði sjálfvirkan fókus, skjástýringu, videoeiginleika og áreiðanleika. Þær henta vel þeim sem vilja meira svigrúm til að þróa sig áfram.
3. 7D línan var sérhæfðari
7D og sérstaklega 7D Mark II voru byggðar með hraða, fókus og sterka byggingu í huga. Þær höfða mikið til þeirra sem taka fugla, dýr, íþróttir eða aðrar hraðar aðstæður.
4. Full-frame varð aðgengilegri
6D gerði full-frame að raunhæfum valkosti fyrir áhugaljósmyndara. 6D Mark II bætti við nútímalegri notkun, meðan 5D Mark III og 5D Mark IV voru sterkari kostir fyrir þá sem vildu meiri afköst, betri fókus og meira vinnuvinnsluþol.
Hvaða vél hentar þér?
Það fer fyrst og fremst eftir því hvernig þú ætlar að nota vélina:
- Byrjendur: 100D, 200D, 250D, 600D, 700D
- Áhugaljósmyndarar: 750D, 70D, 80D, 6D, 6D Mark II
- Hraði / fuglar / sport: 7D, 7D Mark II
- Full-frame með meiri afköstum: 5D Mark III, 5D Mark IV
