Helstu Canon FD linsur fyrir klassískar filmuvélar
Canon AE-1, AE-1 Program, A-1 og F-1 nota Canon FD linsukerfið. Hér er einfalt yfirlit yfir vinsælar FD, New FD og nokkrar eldri FL linsur — hvað þær gera vel og fyrir hvern þær henta.
Fljótleg ráðlegging
Ef þú ert að byrja með Canon filmuvél er oft betra að velja eina góða prime-linsu frekar en stórt safn af gömlum zoom-linsum.
Canon FD / New FD 50mm f/1.8
Ódýr, létt og mjög nothæf
Frábær byrjunarlinsa fyrir daglega notkun, götumyndir, ferðalög og fjölskyldumyndir.
Canon FD 50mm f/1.4 S.S.C.
Klassíska “alvöru” FD linsan
Mjög vinsæl meðal filmuljósmyndara með fallegri bakgrunnsóskýringu og skemmtilegu vintage looki.
Canon New FD 24mm f/2.8
Fyrir ferðalög, landslag og götumyndir
Frábær víðlinsa fyrir umhverfismyndir, ferðalög og þröng rými.
Yfirlit yfir vinsælar Canon FD linsur
Praktískt yfirlit yfir linsur sem sjást reglulega á notaða markaðnum.
| Linsa | Tegund | Hentar fyrir | Athugasemd |
|---|---|---|---|
| Canon FD 50mm f/1.4 S.S.C. | Prime | Portrait / lítil birta | Mjög eftirsótt klassísk FD linsa. |
| Canon New FD 24mm f/2.8 | Wide angle | Ferðalög / landslag | Mjög praktísk víðlinsa. |
| Canon FD 35mm f/2 S.S.C. | Wide / normal | Street / documentary | Mjög vinsæl brennivídd meðal filmufólks. |
| Canon New FD 70-150mm f/4.5 | Telephoto zoom | Portrait / detail | Góð aukalinsa fyrir lengri brennivídd. |
| Canon FL 58mm f/1.2 | Fast prime | Vintage look | Mjög karaktersterk eldri linsa. |
Vantar þig linsu fyrir Canon filmuvél?
Við eigum stundum Canon FD og New FD linsur til fyrir Canon AE-1, AE-1 Program, A-1 og fleiri klassískar vélar.
Skoða vörur