Grunnatriði ljósmyndunar – Kafli 1: Inngangur

Inngangur

Ljósmyndun snýst ekki eingöngu um tækni eða stillingar. Hún snýst um að fanga augnablik, miðla stemningu og varðveita minningar sem skipta máli. Myndavélin er verkfæri í þeirri vegferð – en það er skilningur ljósmyndarans sem gerir myndina lifandi.

Hjá Myndavélamarkaði Canon & Co. trúum við því að myndavél sé meira en bara tæki. Hún er tenging milli fólks, augnablika og minninga. Þess vegna leggjum við áherslu á vandlega valinn búnað þar sem nákvæmni, áreiðanleiki og handverk eru í hávegum höfð – búnað sem endist og eldist með reisn.

Markmið okkar er að hjálpa þér að fanga fegurð augnabliksins með búnaði sem þú getur treyst. En góður búnaður einn og sér er ekki nóg. Þekking, skilningur og æfing skipta ekki síður máli.

Þessari bók er einmitt ætlað að aðstoða þig við að byggja upp þann grunn.

Um þessa bók

Grunnatriði ljósmyndunar er Grunnatriði ljósmyndunar er stafræn fræðslubók sem hjálpar þér að skilja hvernig ljósmyndir verða til – og hvernig þú færð meira út úr myndavélinni þinni.

Í bókinni er Canon EOS 100D notuð sem viðmið þar sem hún er einföld, aðgengileg og dæmigerð fyrir margar DSLR-myndavélar. Hugtökin og aðferðirnar sem hér eru útskýrðar eiga þó við um flestar myndavélar, óháð gerð eða framleiðanda.

Í bókinni lærirðu meðal annars um

  • uppbyggingu og helstu stillingar myndavélarinnar
  • ljós, ljósop, lokahraða og ISO
  • samsetningu og sjónarhorn
  • hagnýta notkun í mismunandi myndatökuaðstæðum
  • viðhald, búnað og undirbúning

Markmiðið er ekki að kenna þér allt í einu, heldur að veita þér skýran og traustan grunn sem þú getur byggt áfram á – með æfingu, forvitni og gleði að leiðarljósi.