Grunnatriði ljósmyndunar – Kafli 2: Kynntu þér vélina þína

Kynntu þér vélina þína

Fyrsta skrefið í betri ljósmyndun er að þekkja verkfærið þitt. Þegar þú veist hvar helstu stillingar eru og hvað þær gera, verður auðveldara að bregðast fljótt við aðstæðum og ná þeim myndum sem þú sérð fyrir þér.

Ráð: Prófaðu að halda á vélinni og finna hnapparöðina með fingrunum án þess að horfa. Markmiðið er að geta breytt grunnstillingum án þess að missa augnablikið.

Helstu hlutar myndavélarinnar

  • Myndavélahús: Stjórntæki, rafhlaða, minniskort og innbyggður hugbúnaður.
  • Linsa: Mótar sjónarhorn, skerpu og oftast „tilfinningu“ myndarinnar.
  • Skjár: Til að skoða myndir, stilla valmyndir og (í mörgum vélum) mynda í Live View.
  • Leitari (viewfinder): Hjálpar þér að ramma inn og vinna stöðugar, sérstaklega í birtu.
  • Fókuskerfi: Velur hvar myndin á að vera skörp – handvirkt eða sjálfvirkt.

Grunnstillingar sem þú ættir að kunna

Stillingarskífa á Canon EOS myndavél
Dæmi um stilliskífu á Canon EOS myndavél (Auto, Av, Tv og M).

Þú þarft ekki að læra allt í einu – þetta er ferli sem byggist upp með notkun.. Byrjaðu á nokkrum atriðum sem þú notar oft, og bættu svo við eftir því sem þú færð meiri reynslu.

Litlar, einfaldar venjur skipta oft meira máli en flóknar stillingar.
  • Myndstilling (Mode): Auto, P, Av, Tv, M.
  • ISO: Næmni skynjarans (meira ISO = bjartara en oft meiri korn/hávaði).
  • Lokahraði: Stjórnar hreyfingu (frystir eða mýkir).
  • Ljósop: Stjórnar dýptarskerpu (bakgrunnur óskýr / skarpari).
  • Fókusstilling: One Shot / Servo (eða sambærilegt), og val á fókuspunkti.
  • Hvítjöfnun (White Balance): Stýrir litblæ (hlýtt/kalt) eftir birtu.
  • Myndgæði: RAW vs JPG (RAW gefur meira svigrúm í vinnslu).

Auto vs. hálfsjálfvirkt vs. manual

Sjálfvirkar stillingar geta verið frábær byrjun, en þegar þú lærir að nota Av (Aperture Priority) eða Tv (Shutter Priority) færðu mun meiri stjórn án þess að þetta verði flókið. Manual (M) kemur svo sterkt inn þegar þú vilt fulla stjórn eða birtan er stöðug.

Prófaðu þetta: Veldu Av/TV og taktu tvær myndir af sama viðfangsefni með mismunandi stillingu (t.d. lægra/hærra ISO eða hægari/hraðari lokahraða). Skoðaðu svo muninn.

Litlar venjur sem skipta miklu

  • Hafðu alltaf hleðda rafhlöðu og tómt minniskort (eða nóg pláss).
  • Notaðu hálsól eða handól – það minnkar líkur á slysi og hjálpar stöðugleika.
  • Skoðaðu myndina stuttlega (en festu þig ekki í skjánum).
  • Stilltu fókuspunktinn viljandi – ekki treysta alltaf á að vélin velji rétt.