Minniskort í ljósmyndun

FRÓÐLEIKUR · BÚNAÐUR TIL LJÓSMYNDUNAR

Minniskort í ljósmyndun – pláss, hraði og rétt val

Minniskort eru oft vanmetin – þar til þau valda vandræðum. Hér útskýrum við á einfaldan hátt hvernig pláss, hraði og gerð minniskorts hefur áhrif á ljósmyndun og myndskeið.

32GB = byrjun 64GB = þægilegt 128GB = staðall V30 = nóg fyrir flesta V90 = sértilvik

1) Geymslupláss – hvers vegna 32GB er oft ekki nóg

Hversu mikið pláss þú þarft fer fyrst og fremst eftir því hvort þú tekur RAW eða JPEG og hvort þú tekur myndskeið.

Almenn viðmið
  • 32GB – dugar í byrjun, fyllist fljótt
  • 64GB – þægilegt fyrir flesta
  • 128GB – raunhæfur staðall í dag

APS-C vélar (t.d. 200D og 250D) framleiða minni RAW skrár en Full Frame vélar, en jafnvel þar fyllist 32GB kort fljótt við reglulega notkun.

2) Hraði – hvenær skiptir hann máli?

Fyrir venjulega ljósmyndun skiptir hraði oft minna máli en fólk heldur. Hann verður mikilvægur í myndskeiðatöku og þegar teknar eru margar myndir í röð.

Algengar merkingar
  • UHS-I – algengasta kerfið, dugar í flestum DSLR
  • UHS-II – hraðara, nýtist best með samhæfðum vélum
  • U3 / V30 – mælt með fyrir video
  • V90 – fyrir krefjandi video

3) Hvaða kort hentar fyrir hvaða myndavél?

Notkun Pláss Hraði Athugasemd
APS-C (200D, 250D) 64–128GB UHS-I, V30 Besti jafnvægispunkturinn
Full Frame DSLR 128GB UHS-I eða UHS-II Stærri RAW skrár
Krefjandi video 128GB+ V60/V90 Stöðugur skrifhraði mikilvægur

4) Kort sem við mælum með

SanDisk Extreme Plus 128GB – allt að 150 MB/s

Frábært allround kort fyrir daglega ljósmyndun.

Skoða kort

SanDisk Extreme 128GB – UHS-I, U3, V30

Góður kostur fyrir video og almenna notkun.

Væntanlegt

SanDisk Extreme PRO 128GB – UHS-II

Fyrir hraðari vinnslu og flutning.

Væntanlegt

SanDisk Extreme PRO 64GB – UHS-II, V90

Sérhæft kort fyrir krefjandi video.

Væntanlegt

5) Algengar spurningar

Er hætta á fölsuðum minniskortum?

Já, sérstaklega við ótrúlega lágt verð. Kaup frá traustum söluaðila draga verulega úr áhættu.

Er betra eitt stórt eða fleiri minni kort?

Fyrir öryggi eru fleiri minni kort oft betri, fyrir þægindi er 128GB vinsælt.

Af hverju hægir vélin á sér í burst?

Þá er buffer að fyllast. Hraðara kort getur hjálpað, en vélin setur líka mörk.