Ertu kominn á Full-Frame?
Ef þú ert að velta fyrir þér Canon Full-Frame DSLR, þá ertu líklega kominn lengra en byrjendastigið. Spurningin er ekki hvort – heldur hvaða vél hentar þér best. Flestir sem koma hingað eru þegar með APS-C vél og finna að þeir vilja meira – meiri dýpt, betri frammistöðu í lítilli birtu og meiri stjórn. Hér eru þrjár algengustu Full-Frame vélarnar hjá viðskiptavinum okkar í dag.
Til á lager núna: Skoðaðu hvaða Canon Full-Frame vélar eru í boði – allar prófaðar, flokkaðar og með skýran smellafjölda.
Skoða Full-Frame vélarFull-Frame er ekki alltaf nauðsynlegt
Ef þú ert að byrja eða myndar mest í góðri dagsbirtu getur APS-C verið fullkomlega nóg. Full-Frame borgar sig sérstaklega þegar þú vilt meira svigrúm í lítilli birtu, meiri dýpt og “meiri myndavél” í höndunum.
- APS-C getur dugað vel fyrir einfaldari notkun og ferðalög
- Full-Frame hentar best ef þú vilt uppfærslu í gæðum, dýpt og lítilli birtu
Canon EOS 6D
Fullkomin fyrsta Full-Frame vélin fyrir marga – sérstaklega fyrir norðurljós, landslag og portrett.
- Full-Frame skynjari → betri myndgæði og meiri dýpt
- Frábær í lítilli birtu
- Einföld og áreiðanleg
- Hagkvæm leið inn í Full-Frame
Canon EOS 5D Mark III
Fyrir þá sem vilja faglegri tilfinningu og meiri stjórn: sterk bygging, hraðari AF og tvö kort.
- Betri og hraðari autofocus en 6D
- Sterk og veðurþétt bygging
- Tvö minniskort
- Mikið notuð af bæði áhugamönnum og atvinnuljósmyndurum
Canon EOS 6D Mark II
Fyrir þá sem vilja Full-Frame ásamt nútímalegri notkun: snertiskjár, hallaður skjár og frábær þægindi.
- Snertiskjár með fullum halla
- Betra Live View / video-notkun
- Nýrri skynjari
- Mjög þægileg í daglegri notkun
Engin skuldbinding – flestir spyrja bara 1–2 einfaldra spurninga.
Fyrir þá sem eru komnir mjög langt: Canon EOS 5D Mark IV
Sumir vita nákvæmlega hvað þeir vilja. 5D Mark IV er öflug vél fyrir krefjandi notkun (nýrri autofocus, meiri upplausn og mjög sterkt “all-round” verkfæri). Hún fær sinn eigin hnapp svo hún flæki ekki valið fyrir aðra.
