Gull, Silfur og Brons vélar – Vandað val
Hér finnur þú vandlega valdar fyrst flokks Canon myndavélar á lager – flokkaðar í Gull, Silfur og Brons eftir ástandi, smellafjölda og heildaryfirbragði. Allir flokkar innihalda góðar vélar; munurinn liggur í ástandi, aldri, notkun og verði.
🥇 Gull-eintök
Úrval bestu eintaka
Sérlega sjaldgæf úrvals-eintök með WiFi, afar lágan shutter count og nánast ósnert yfirbragð. Þetta eru vélar sem líta næstum út eins og nýjar – fyrir þá sem vilja einfaldlega það allra besta.
- Óvenju lítið notaðar
- Framúrskarandi ástand
- Henta vel sem gjöf eða til langtímanotkunar
🥈 Silfur-eintök
Gott jafnvægi milli gæða og verðs
Mjög vel með farin og lítið notuð eintök sem bjóða upp á sterka blöndu af gæðum, ástandi og góðu verði. Traust kaup fyrir þá sem vilja vandaða Canon vél í mjög góðu ástandi.
- Lítið notaðar
- Vandlega yfirfarnar
- Góð kaup með minni áhættu
🥉 Brons-eintök
Traust val á hagstæðu verði
Reyndar og traustar Canon myndavélar af eldri gerð sem bjóða upp á góða virkni og mikið notagildi á lægra verði. Þær geta borið eðlileg notkunarmerki en eru að fullu yfirfarnar og í góðu lagi.
- Hagkvæmari kostur
- Yfirfarnar og prófaðar
- Góður inngangur inn í Canon kerfið
Allar vélar eru yfirfarnar og prófaðar á Íslandi og koma með skýra lýsingu á ástandi, virkni og smellafjölda – svo þú veist nákvæmlega hvað þú ert að fá.
Hvað er “shutter count”?
Shutter count er fjöldi mynda sem hefur verið tekin með vélinni. Lægri tala þýðir yfirleitt minni notkun – en heildarástand, umhirða og meðferð skiptir líka miklu máli.
